Vínstúkan Tíu sopar Laugavegi 27

Vínstúkan tíu sopar opnaði í Júní 2019 og hefur frá opnun verið leiðandi í sölu á skemmtilegum vínum með brosi og töffaraskap. Tíu sopar er byggður á mikilli þekkingu allra þeirra sem að rekstrinum koma og býður staðurinn ávallt upp á fjöldann allan af vínum í glasavís sem og sístækkandi vínlista. Með vínunum bjóðum við svo upp á matseðil sem er hannaður með vínin okkar í huga. Þetta eru allt saman deiliréttir, tapas réttir gerðir á okkar hátt.